Munið gestabok og komment !!

29.06.2005 22:57:12 / sigrun66

Bara smà àminning

Munid gestabòkina !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2005 06:19:48 / sigrun66

Flest er nú til !!!!!!

http://www.nrk.no/nyheter/utenriks/4854767.html

Fyrir þá sem ekki skilja norsku að þá kom 16 ára strákur á spítala í Bangladesh vegna magaverkja. Læknarnir fundu þá í kviðnum á honum fóstur af tvíburabróður hans sem hafði vaxið inn í hann á fósturskeiði....semsagt annað fóstrið óx inn í  hitt og hélt áfram að vaxa með stráknum í 16 ár sem æxli. Fóstrið var fullskapað fyrir utan höfuðið. Það hefur nú verið fjarlægt og vóg 2 kg.


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2005 02:12:14 / sigrun66

Adfararnott 27. juni

Hæ hæ .. sit her vid tølvuna i vinnunni og tvi eru engir islenskir stafir en tad hlytur ad reddast svona i eitt skipti. Eg er semsagt a næturvakt og tad er alveg serlega rolegt svo til ad varna tvi ad eg sofni eins og hun Marthe sem er ad vinna med mer ta er eins gott ad skrifa svolitid tvi tessa dagana timi eg bara ekki ad eyda døgunum innandyra og vid tølvuna heima. Tad hefur ju verid her tvilika blidan sidustu dagana 25 stiga hiti og sol hvern dag og tad er bara spad meiri hita. Hitabylgjan sem hefur verid ad gera utaf vid folk i Evropu er vist a leidinni hingad, spain hljodar uppundir 30 stig amk a midvikudag og fimmtudag og eg i frìi ....enn sem komid er 8). Vonandi kemur einhver sneid af tessum hlyindum til Islands. En Tad sem helst hefur a daga mina drifid sidan eg vard ein i kotinu er tad ad fyrir utan vinnuna ta for eg a tonleika eda show a fimmtudagskvøldid i tengslum vid Europride... hatidahøld samkynhneigdra i Evropu sem hafa stadid her i Oslo sidustu vikuna. Teir stodu fyrir Eurovision showi sem var hreinasta snilld ...tveggja og halfs tima program af Eurovision løgum gømlum og nyjum. Flestir listamannana voru norskir svo voru einhverjir svìar, danir, einn finni, bretar og svo Selma okkar Bjørns og Pàll Òskar. Tau voru nàtturulega alveg ad slà ì gegn enda  àdur en Selma kom à svid byrjadi kynnirinn svona:

"Àrid 1999 var svart àr ì søgu Eurovision........tà vann nefnilega ..Sverge!!!! Og ì ødru sæti var hùn Selma sem vid Nordmenn elskum."

Hùn Selma er vìst frekar vinsæl hèrna eftir tàtttøkuna i àr og lagid "If I had your love" og ad sjalfsøgdu søng hun tetta lag og All out of luck og var vel fagnad. Pàll Òskar kom à eftir sænskum ballødusøngvara sem søng eitthvad vodalega ròmantìskt lag og hann var tvì kynntur sem syndaselur.... " Ùr ròmantìkinni ì syndina ...kynnti kynnirinn hann ;) en Palli stendur alltaf fyrir sìnu og tòk atridid ùr Eurovision òbreytt. Eg tok tau bædi upp à video sem eg ætla ad reyna ad setja inn à nyjustu myndasiduna tegar timi vinnst til. En tar eru reyndar komnar myndir frà showinu. À laugardaginn dreif eg mig a fætur um eittleytid...ekki hægt ad eyda svona døgum i ad sofa (enda er madur ad supa seydid af tvi nuna og er halftreytt en skitt med tad get sofid i ellinni eda i vetur eins og Villi Àgustar sagdi einu sinni vid okkur i sjoppunni fordum daga ) Og nidur à Karl Johan gøtu. Tar ùdi og grùdi allt af folki...næstum jafnmargt og 17. mai og allir ad bida eftir Gay pride skrudgøngunni. Tad var rosa gaman ad sja alla buningana og munderingarnar sem lidid hafdi klætt sig i ....(eda ekki klætt sig i ) tvi sumir voru nanast naktir. En èg get sko sagt tad med sanni ad sjaldan eda aldrei bara hef èg sèd eins mikid samansafn af fallegum karlmønnum ...bara allt hommar :$ tvilik sòun segi èg nu bara !! Eg tòk natturulega fullt af myndum sem eg hendi inn fljotlega. Annars er bara allt gott ad fretta, eg keypti 2 tessi finu fjallahjol sitt hvort handa okkur mædgum i sidustu viku...tau komu ekki alveg samansett svo nu stendur annad hjolid ...nææstum samansett a stofugolfinu og eg get sagt med godri samvisku ad tad er algjør skitafyla af teim...gummi dekkja lykt....en hitt er enn i kassanum...vantar bara sma verkfæri sem eg redda mer i dag og ta halda mer engin bønd ....UT AD HJOLA og UT med hjolin!!!  Jæja ..best ad hætta nuna og vekja Marthe....turfum ad fara ad athuga med lidid ....hvort allir sèu à lìfi !! ;)

Bestu kvedjur frà sòlarstrøndinni Oslo


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2005 17:58:45 / sigrun66

Nýjar myndir og myndasíða

Hæ hæ ... bara láta vita af einni enn myndasíðunni ...þar sem sú sem ég hef notað upp á síðkastið er orðin full...plássið búið semsagt, hér er slóðin og svo er auðvitað linkur undir flokknum myndir og Myndir/photos ..hér koma allar nýjar myndir núna 8)

 Ha det !!

home.online.no/~sigrun66/"


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2005 21:13:03 / sigrun66

21.juni

Hæ hæ ....jæja þá er hún Ingunn í háloftunum ásamt Sunnu og Þórunni Árna  akkurat núna á leið til Íslands. Þessi dagur er búinn að vera aldeilis einn sprettur. Síðasti skóladagur hjá Ingunni auðvitað og svo náttúrulega venjulegur vinnudagur hjá mér. En strax og ég kom heim pökkuðum við síðustu plöggunum hennar Ingunnar og svo brunuðum við af stað að sækja Jórunni og Sunnu. Þær stóðu tilbúnar úti á hlaði og áfram var haldið. Nú það er nú ekki svo langt á Gardermoen að við þyrftum að leggja af stað með 5 tíma fyrirvara en þannig er að Karlakór Dalvíkur er á söngferðalagi hérna.. búnir að vera í Danmörku og smá hopp yfir til Svíþjóðar og komu hingað í gær. Þeir héldu svo tónleika í Hænufossi (Hønefoss) 40 km upp af Oslo og mágur Jórunnar er í kórnum og systir hennar með svo hana langaði að fara og hlusta....okkur fannst það alveg tilvalið að fara á konsert og keyra svo bara frá Hønefoss til Gardermoen. Jamm við rétt komum í tíma áður en kallarnir byrjuðu og auðvitað voru þeir þrælgóðir...og kom mér á óvart hvað ég þekkti margt fólk þarna. Fyrsti maður sem ég hitti og fékk stórt knús og koss frá var hann Felix Jósafats :) svo ...löbbuðum við inn og fundum Huldu Þórs en Júlli er í kórnum og hún var að sjálfsögðu með í túrnum. Svo í pásunni kom hver af öðrum að heilsa.. Júlli, Halli Hreins, Badda hans Felixar, Vignir og svo hitti ég Ingu frænku Bragadóttur en pásan var svo stutt að manni entist ekki tími til að spjalla að vild við alla og ekki heldur eftir tónleikana. En þeir sungu í einn og hálfan tíma ...flottir tónleikar. Ingunn var nú að verða frekar stressuð því við vissum ekki alveg hvað við værum lengi að keyra til Gardermoen frá Hønefoss.....héldum að það væri svona hálftími. Þórunn Árna hitti okkur svo þarna ...hún þurfti skyndilega að fara heim til Íslands og hoppaði af lestinni frá Geilo í Hønefoss og kom með okkur á völlinn. Jæja við keyrum af stað og fljótlega sáum við skilti sem á stóð 64 km til Gardermoen...ok hmmm sirka 3 korter að keyra og klukkan var að verða átta ....flugið átti að fara fimm mínutur í tíu...jamm ok nógur tími ....svo vorum við búnar að keyra í smástund og þá kom skilti ...vegur 35 til Gardermoen lokaður...fylgið gulu skiltunum  !! Og til að gera langa sögu stutta þá fórum við einhverja fjallabaksleið sem Þórunn hafði sem betur fer keyrt einu sinni áður og var töluvert lengri og ekki nóg með það heldur var bíllinn tæpur á bensíni líka ...ég átti nefnilega von á bensinstöð á næsta leiti en svo var ekki. En druslan var þanin eins og aðstæður leyfðu...vegirnir eru nefnilega ekkert til að hrópa hátt húrra fyrir og að auki allt í trjám og ekkert sést framundan.....svo gæti maður átt von á elg, hreindýri eða einhverju þvílíku út úr skóginum hvar sem er ... Þetta reddaðist allt fyrir horn en bíllinn var á síðustu dropunum þegar við renndum inn á bensínstöð rétt fyrir utan Gardermoen. Og þær tékkuðu sig inn rétt fyrir klukkan níu. Svo allt hafðist á endanum.

Kveðja frá Oslo


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2005 13:23:21 / sigrun66

20. juni

Hæ hæ ...jæja loksins kom sumarið. Hitastigið byrjaði að stíga miðvikudag og varð bara betra og betra eftir því sem nálgaðist helgina. Svo um helgina var þvílíka bongoblíðan. Á fimmtudagskvöldið var svona kveðjuhóf í bekknum hennar Ingunnar þó svo að 4 dagar hafi verið eftir af skólanum. Krakkarnir voru búnir að æfa ýmis skemmtiariði og tókst bara vel upp. Ég læt Ingunni það eftir að skrifa um það á sinni síðu ef hún nennir því. Það var hins vegar mikil dramatík og táraflóð í gangi hjá stelpunum því bekknum þeirra verður splittað upp og þau eru bara örfá sem lenda saman í bekk næsta haust. Ingunn var heppin og fékk þær sem hún óskaði sér með í nýja bekkinn. Á föstudagskvöldið brunuðum við ásamt Jórunni og Sunnu uppí Íslendingahúsið í Norefjell. Þar fyrir voru ein íslensk hjón sem búa hér með 2 dætur og svo mæðgin og frænka þeirra ættuð úr Öxarfirðinum minnir mig...sögðust reyndar eiga ættir að rekja í Kelduhverfið og Mývatnssveit (Víkingavatn). Frænkan býr á Hafralæk í Aðaldal, er kennari þar og að sjálfsögðu þekkir Múlafólk og alla Kjartans ætt heyrðist mér. Á laugardaginn skein sólin glatt og maður var nú ekki lengi að rífa af sér leppana og leggjast í sólina.  Við Jórunn ásamst stelpunum fórum reyndar í smá leiðangur og ætluðum að finna okkur kanoleigu sem átti að vera hinumegin við vatnið og fara út á vatnið og sigla....við keyrðum og keyrðum og sáum aldrei neina kanoleigu. Þá ákváðum við að fara á einhverja hestaleigu og leigja okkur hesta og fara í smá útreiðartúr, hmmmmmm  ég hestakonan !! hef ekki sest á hestbak síðan ég fór með Mæju og Röggu austur á Illugastaði fyrir tja......sirka 10 árum síðan. Við fundum hestaleiguna en hestarnir voru ekki heima og voru eiginlega ekki leigðir nema til lengri túra.  Svo við keyrðum aftur heim í hús og lögðumst bara aftur í sólina. Þá var aðeins búið að bætast í hópinn, Þórunn með frænda sinn frá Geilo, fólk frá Oslo, íslendingar samt og ein norsk stelpa. Um kvöldið spiluðum við félagsvist og kveiktum varðeld. Svo á sunnudaginn var enn betra veður og þá bara var sólin nýtt í botn...bæði upp við hús og niður á vatninu þar sem þessi fína flotbryggja er og strönd. Enda var mannskapurinn orðinn vel rauður eftir daginn. Ingunn og Sunna fljúga svo heim til Íslands á morgun ...orðnar vel spenntar, svo við tekur "mömmuorlof" i 6 vikur. Stjörnuspáin mín á mbl.is í dag passar líka vel :

LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Ljónið þarf að gæta þess að hvíla sig og slaka á næstu sex vikurnar. Það þarf að fá frið til þess að koma skikki á hlutina áður en það fer í ferðalag.
 
Stemmir !!!!!! 6 vikur í Spán... jæja segjum þetta gott í bili ...set inn myndir frá Norefjell næstu dagana.
Bestu kveðjur frá Oslo

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2005 22:35:06 / sigrun66

13. júni

Heisann alle sammen ....jæja þá fer nú að styttast i að Ingunn klári skólann bara vika eftir og hún er alveg að missa sig úr spenningi að fara til Íslands og byrja að vinna. Það verður alveg nóg að gera hjá henni þessa síðustu viku .... Á morgun fer hún með báðum 7. bekkjunum og kennurunum í hyttu tur ...þau taka lest ca hálfa leið og hjóla svo restina, gista eina nótt og koma heim á miðvikudaginn passlega til að klára karate tímabilið.....hún fær reyndar ekki að gradera fyrr en næsta vetur ( næsta belti) en þau ætla að slutta með grilli á miðvikudaginn. Svo á fimmtudaginn verður lokahóf í bekknum .....þau kveðja kennarann sinn því hún fylgir þeim ekki uppí unglingadeildina...því miður ....hún er svo frábær hún Nína. En um síðustu helgi héldum við þjóðhátíðardaginn hátíðlegann ....svona fyrirfram ..Íslendingafélagið. Það tókst bara nokkuð vel.....og ég tók náttúrulega slatta af myndum ....svo þegar ég ætlaði að hlaða þeim inn í tölvuna í gær .....greip ég næstum í tómt...bara 4 myndir og allt hitt horfið ...skil ekki hvað hefur skeð...því ég var búin að skoða þær á vélinni sjálfri svo þær voru þarna einusinni :frown: Svo það verða engar myndir frá 17 júni hátiðinni okkar.  En um helgina ætlum við að fara uppí Norefjell....hús íslendingafélgsins og vera föstudag til sunnudag.....vooooona nú að það fari að koma almennilegt veður .......það er búið að rigna all hressilega hér síðustu dagana þó að það sé ekkert rosa kuldi  svona 15-18 stig ..vantar bara SÓL. Jæja best að druslast í bælið ...vinna samkvæmt gömlum vana á morgun ....frídagurinn minn fór fyrir lítið ..enda er sú sem er yfir hjarta og lungnasentrinu farin að spyrja hvort ég sé alltaf að vinna ..henni finnst hún sjá mig ansi oft. Gott mál ...ha det bra !!!!!!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.06.2005 16:33:10 / sigrun66

5. júni

Hæ hæ ...jæja í dag er einn af fáum dögum síðan um hvítasunnu sem er sæmilegt veður. Það er bara búið að vera hálfkalt og rigning meira og minna ...sólin aðeins náð að glenna sig einn og einn dag. Vonandi fer þetta nú að skána....annars flyt ég sunnar í álfuna!!!!!!!!!!!! 8) Ég vil sól og hita ........... En helgin hefur bara verið fín.. var fegin að fá 3ja daga frí í vinnunni enda löng törn framundan...en Adam var sko ekki lengi í Paradís því þær hringdu í dag af deildinni og spurðu hvort ég gæti unnið á morgun....auðvitað sagði ég já ...segi alltaf já ..svo þannig fór með sjóferð þá, 3. dagurinn fyrir bí ....en ok það verður dýr dagur á morgun ...vinn á 100% álagi og það gerir bara jaaaa hátt í 40 þús íslenskar ...gaman þegar þessi dagur kemur á launaseðlinum mínum. :D Ösp kíkti í heimsókn á föstudagskvöldið með ungana sína og svo fór ég í mat til Jórunnar á laugardagskvöldið. Það klikkaði ekki maturinn hjá pæjunni frekar en vant er. Ingunn fór í tvöfalda afmælisveislu á laugardagskvöldið líka og var bara ánægð með það. Mér finnst hún vera í endalausum afmælum, í hverri viku. Í dag brunuðum við Ingunn svo til Svíþjóðar í fyrsta skipti síðan við fluttum hingað. Reyndar bara rétt yfir grensuna, til Svínasunds...þangað sem Norðmenn flykkjast reglulega til að versla ...enda töluverður verðmunur á mat...sérstaklega kjöti. Ég verslaði nú alveg slatta og það endist sjálfsagt fram á haust :) enda erum við engar sérstaklegar kjötmanneskjur og ekki nenni ég að elda þegar Ingunn verður farin heim. En það er rosa gaman að fara og versla þarna...allskonar kjöt...og ef ég hefði haft frysiskáp eða aðeins stærri frysti  hefði ég keypt miklu meira...hreindýrakjöt og dádýrakjöt  ...keypti reyndar smá smakk af elgskjöti...og það kostar svooo  lítið. Jæja nú nenni ég ekki að skrifa meir í bili ....hafið það gott alle sammen

Kveðja frá Oslo


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2005 06:43:34 / sigrun66

Neyðarlegt

:lol:  http://linklog.slowdown.co.uk/viewclip.asp?clip=fart :lol:

ATH hljóðið verður að vera á, semsagt kveikt á hátölurum  !!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  33  Alls: 91095
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 1 mars
Myndir/Bilder/photos
Myndasiða Ingunnar