12.11.2008 16:09:52 / sigrun66
12. Nov ...ný byrjun.
Jæja ....Telenor sölumennskan var ekki alveg að fungera fyrir mig ...svo þegar ég fékk tilboð um annað starf sagði ég já takk. Og í dag byrjaði ég semsagt í nýju vinnunni ....sem er sú að ég vinn hjá fyrirtæki sem vinnur fyrir Kirkens Nödhjelp...eða Hjálparstofnun Kirkjunnar ásamt 3 öðrum hjálparstofnunum við að fá inn peninga frá fyrirtækjum til hjálparstarfsins. Ég er samt ekkert orðin neitt ofurtrúuð ef þið haldið það
en við fyrstu sýn er þetta mjög spennandi starf og góður hópur sem vinnur þarna.
Annað ...sem er eiginlega ekki neitt nýtt en ég er búin að ákveða að hlaupa aftur 1/2 maraþon í Apríl ...og það í Berlín! Er reyndar búin að skora á Ella hennar Dísu að hlaupa með mér ...áskorun sem hann tók og nýjustu fregnir frá DK herma að nú spýtist hann yfirr stokka og steina í æfingum fyrir hlaupið ....ég hef hinsvegar tekið því all rólega við hlaupin síðan Oslo-Glitnis maraþonið var en nú ætla ég að byrja aftur fyrir alvöru ......með hlaupaæfingarnar...... Í DAG.
Svo 12. Nov er dagur breytinga !!!
Annars er mest lítið í fréttum ...jú ætla að skreppa til Köben í byrjun Des með Vanessa ....vorum heppnar að við keyptum EKKI flugmiða með Sterling og svo styttist náttúrulega óhugnarlega til jóla .......og eins og venjulega þá hlakka ég allra mest til að jólin séu yfirstaðin því þá veit ég að dagurinn lengist smátt og smátt ........þessir stuttu dagar eru ekki mitt uppáhald.
Læt þetta gott heita að sinni ...Lifið heil