01.11.2008 19:30:56 / sigrun66
Kominn tími á smá blogg....
Já það hefur ekki mikið verið um að vera hérna hjá mér í það síðasta...bara brjáááluð vinna ...en nú vinn ég pínu minna á næstunni svo kannski verður tími til að gera eitthvað skemmtilegt. Maður heyrir ekkert um neitt annað í fréttunum hérna en fjármálahrunið á Islandi og ég verð nú að segja að maður er nú orðinn freeekar þreyttur á þessu.
En í dag var ég á landsleik Noregs og Íslands í handbolta og mæ ó mæ ..það var ekkert smá spennandi og ótrúlega gaman að Ísland skyldi ná einu stigi með heim !!! Þeir hefðu reyndar getað unnið með góðum mun ef þeir hefðu náð að nýta eitthvað af þeim færum sem fóru forgörðum. En jafntefli var glæsilegt. Við smöluðum nettu liði af Íslendingum og létum ekki okkar eftir liggja í að hvetja strákana...enda heyrðist ekki mikið minna í okkur í höllinni en Norðmönnum, þó við værum ekki nema kannski 200 stykki á móti nokkur þúsund Norsurum 
Það er nú svo ...um næstu helgi er svo "sveitaball" í Oslo ....með hljómsveit frá Íslandi sem samanstendur af eftirfarandi.
Valur ( Buttercup) söngur
Hanni ( Skítamórall, Írafár) trommur
Siggi ( Írafár) bassagítar
Birkir (Ber) gítar
það verður án efa mjög gaman......en þá læt ég staðar numið hér get nú ekki sagt frá öllu ...þá blogga ég kannski fljótlega aftur
Hafið það gott öll