Munið gestabok og komment !!

22.02.2009 15:09:23 / sigrun66

Febrúar.....

Jæja ...það er nú eitthvað nýtt á döfinni hérna ...
  • Er byrjuð í hjálparsveit Rauða Krossins ...sem virkar svona eins og björgunarsveitirnar á Íslandi ....spennandi !!!!!
  • Ákvað að fara aftur í sjúkrahúsvinnu "full time" (eða reyndar 80%)...byrja á Radiumhospitalet 1.mars, sem er krabbameinssjúkrahús. Verð að vinna á meðferðardeild fyrir fólk með krabbamein í höfði og hálsi, lungum, heila og húð. Hlakka til að byrja!!
  • Þorrablótið var 7.feb....og klikkaði ekki frekar en fyrr. Stuðboltarnir okkar komu að gömlum vana þ.e. Benni, Biggi, Viggi ÞS,Viggi SV, Sjonni og hljóðmaðurinn Binni..... Allir skemmtu sér rosa vel.
  • Við erum í orðsins fyllstu merkingu að DRUKKNA í snjó!! Ég hef ekki séð svona mikinn snjó í mörg mörg ár....
  • Í gær völdu Norðmenn sitt Eurovisionlagið sitt..... dritkult ..eins og norðmenn segja ..finnst mér allavega  sjáið hér http://www.youtube.com/watch?v=jTdndLFY3W0
Ekkert meira í bili ....lifið heil og til hamingju með konudaginn konur!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 23:30:10 / sigrun66

Fyrsta blogg ársins 2009

Komin heim. Jólafríið var frábært en leið bara allt of hratt, 2 vikur búnar eins og hendi væri veifað. Á morgun tekur við hinn grái leiðinlegi hversdagsleiki ...ég að vinna  ...allan sólarhringinn!!

Ég segi það alveg satt að ég bara hreinlega nenni því ekki!! En maður verður víst. Oslo heilsaði með brunagaddi ....17 gráður í mínus á Gardermoen ...10 í Oslo. Það voru dálítil viðbrigði frá + 7 gráðum í Reykjavík.

En ljósi punkturinn í þessu öllu saman er að nú er jú daginn tekið að lengja og það finnst mér æði ....sumarið verður komið eftir smástund :)

Gleðilegt nýtt ár öllsömul og takk fyrir það gamla !! Og gömlu ....................



» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 21:52:49 / sigrun66

Tvö vídeó frá aðventuhátíð í Oslo

Iskórinn syngur Sjá Himins opnast hlið og Sopranos og Iskórinn syngja Ó helga nótt á aðventuhátíð í Nordberg kirkju í Oslo í dag
....Sopranos.....alveg frábærar söngkonur !! Fengu hárin á mér til að rísa!! Og Ískórinn er aldeilis ekki slæmur heldur!!


Kíkið á vídeóin

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 09:50:02 / sigrun66

Skemmtilegir textar...

Fékk þessa söngtexta senda til mín á emailið...... höfundur er Kalli, hvaða snillingur það er veit ekki ég en textarnir eru góðir!!

Nú hellast yfir jólahlaðborð og árshátíðir....góð tillaga í söngbókina fyrir slíkar uppákomur !!!


ÚTRÁSARVÍKINGARNIR
lag (Við læðumst hægt –
úr Kardemommubænum)

Við býsna mikið berumst á,
til Bretlands erum farnir.
Í Danmörku flest keyptum, já
við útrásarvíkingarnir.
Við kaupum og seljum út um allt
og græðum meira en hundraðfalt.
Svo græðum við barasta meir og meir
já við Björgólfur, Hannes og Jón Ásgeir.

Við kaupum það sem finnum falt
í flestum skúmaskotum.
Og fljúgum síðan út um allt
á nýjum einkaþotum.
Og enginn spyr okkur ekkert um,
með alla pressuna í vasanum.
Svo græðum við barasta meir og meir
já við Björgólfur, Hannes og Jón Ásgeir.

BANKAMENNIRNIR
(sama lag og við útrásarvíkingana)

Við digrum samning erum á,
svo endalaust við græðum.
Í sjóði landsins nú skal ná
með nýjum hagnaðarfræðum.
Og til að halda okkur gangandi
við ruplum suður á Bretlandi.
Já, það er nú meira, hvað karlinn er klár,
já við Sigurjón, Welding og Heiðar Már.

Við veiðum stundum lax með lús
og leigjum þyrlur allir.
Við byggjum okkur lúxushús
og ljúfar sumarhallir.
Og ökum um á Roverum
og partý með útlendum söngvurum.
Já við erum alls engin meðalgreind flón,
já við Heiðar Már, Welding og Sigurjón.

ÞJÓÐIN
(lag: dvel ég í draumahöll úr Dýrunum í Hálsaskógi)

Dvel ég í draumaheim
og dýrka víkingana.
Sólarferðir, borga-geim...
og skíðaferðir plana.
Flatskjár, raðhús, freyðivín,
fellihýsi og sleði.
Svona líður ævi mín
í kaupæði og gleði.

DABBI (lag: Rebbavísur úr Dýrunum í Hálsaskógi)

Hér mætir Dabbi, sjá
með alvæpni ó-já.
Með stýrivexti og verðbólgu
og vaxtahækkun, vá.
Í Svörtuloftum er
og stjórna öllu hér.
Hið litla, montna Glitnis-grey
nú mætti gá að sér.
Ég kalla: "Gagg með kló í Baugsins-skinni,
þá kveð ég, þér ég næ að þessu sinni.
Þó að það kosti kannski hér
að við steytum upp á sker,
þá tek ég bara allt heila klabbið
í hafdjúpið með mér – HA HA HA HA"

JÓHANNA
(Kardimommubærinn, lagið hennar Soffíu frænku)

Ja fussum svei, ja fussum svei.
Mig furðar þetta rót.
Í hverju skoti skúm og ryk
og skran og rusl og dót.
Og skuldasúpa út um allt,
en eignir engar finn.
Víkingarnir flugu út
og hirtu afganginn.

Já ástandið er ansi svart,
já allt sem moldarflag.
Og kraftaverk nú þyrfti til
að koma öllu í lag.
Ég hækka bætur, hirði upp drasl
og hreinsa skítinn hér.
Já, núna loksins kom að því.
Minn tími kominn er.

ÚTRÁSARVÍKINGAR OG BANKAMENN
(Hvar er húfan mín úr Kardimommubænum)

Hvar er bankinn minn?
Hvar er kaupaukinn?
Hvar er stóri feiti kaupréttarsamningurinn?
Hvar er flugrisinn?
Og hvar er Baugurinn?
Sérðu markað fyrir hlutabréfaviðskiptin?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.

Sérðu gjaldeyri?
Sérðu markaði?
Eða síbrosandi stóráhættufjárfesti?
Sérðu þotuna?
Eða jeppana?
Sérðu fylgispöku faguryrtu þjóðina?
Ég er viss um að það var hér allt í gær.

Sérðu Illuga?
stuttbuxnastrákana?
Hvar er Bjarni Ben og menntamálaráðherra?
Hvar er Guðni minn?
og öll Samfylkingin?
Hvar er Björgvin, hvar er Solla, hver er forsetinn?
Ég er viss um að þau voru með í gær.
Já, ég er viss um að þau voru með í gær.

Höfundur: Kalli.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 21:40:05 / sigrun66

Nei ..það er ekkert að frétta frá Norge ...

....allar fréttirnar síðustu vikur hafa verið frá Íslandi ...mótmæli, krísa, óeirðir, krísa, meiri mótmæli og aftur krísa...og að Geir H Haarde neiti að segja af sér.

Nú er krísan eitthvað að koma hingað ....atvinnuleysið er að aukast en Kristin og Jens kafa bara ofan í olíusjóðina sína og deila út krísupökkum hægri-vinstri.

Ég hinsvegar...ætla að taka stöðuna á Baunaríkinu um næstu helgi, er sumsé að fara til Köben með Vanessa. Það verður gaman að sjá hvernig danskurinn tekur á móti manni :d .... Svo styttist í Ísland....kem 21. des til landsins..og skýst norður á milli jóla og nýjárs að heilsa uppá liðið þar.

Ingunn kemur svo suður á aðfangadagsmorgun og verður fram yfir áramót ....

Segi ykkur frá DK túrnum ef það verður eitthvað að segja frá !! Hafið það gott þangað til næst.



» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 12:06:56 / sigrun66

Frá og með morgundeginum

hef ég aftur heimasíma ....og númerið er 0047 22 49 40 27

Verður ekki fyrr en á föstudaginn :s


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 16:09:52 / sigrun66

12. Nov ...ný byrjun.

Jæja ....Telenor sölumennskan var ekki alveg að fungera fyrir mig ...svo þegar ég fékk tilboð um annað starf sagði ég já takk. Og í dag byrjaði ég semsagt í nýju vinnunni ....sem er sú að ég vinn hjá fyrirtæki sem vinnur fyrir Kirkens Nödhjelp...eða Hjálparstofnun Kirkjunnar ásamt 3 öðrum hjálparstofnunum við að fá inn peninga frá fyrirtækjum til hjálparstarfsins. Ég er samt ekkert orðin neitt ofurtrúuð ef þið haldið það :haha: en við fyrstu sýn er þetta mjög spennandi starf og góður hópur sem vinnur þarna.

Annað  ...sem er eiginlega ekki neitt nýtt en ég er búin að ákveða að hlaupa aftur 1/2 maraþon í Apríl ...og það í Berlín! Er reyndar búin að skora á Ella hennar Dísu að hlaupa með mér ...áskorun sem hann tók og nýjustu fregnir frá DK herma að nú spýtist hann yfirr stokka og steina í æfingum fyrir hlaupið ....ég hef hinsvegar tekið því all rólega við hlaupin síðan Oslo-Glitnis maraþonið var en nú ætla ég að byrja aftur fyrir alvöru ......með hlaupaæfingarnar...... Í DAG.

Svo 12. Nov er dagur breytinga !!!

 Annars er mest lítið í fréttum ...jú ætla að skreppa til Köben í byrjun Des með Vanessa ....vorum heppnar að við keyptum EKKI flugmiða með Sterling og svo styttist náttúrulega óhugnarlega til jóla .......og eins og venjulega þá hlakka ég allra mest til að jólin séu yfirstaðin því þá veit ég að dagurinn lengist smátt og smátt ........þessir stuttu dagar eru ekki mitt uppáhald.

Læt þetta gott heita að sinni ...Lifið heil



» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 19:30:56 / sigrun66

Kominn tími á smá blogg....

Já það hefur ekki mikið verið um að vera hérna hjá mér í það síðasta...bara brjáááluð vinna ...en nú vinn ég pínu minna á næstunni svo kannski verður tími til að gera eitthvað skemmtilegt. Maður heyrir ekkert um neitt annað í fréttunum hérna en fjármálahrunið á Islandi og ég verð nú að segja að maður er nú orðinn freeekar þreyttur á þessu.

En í dag var ég á landsleik Noregs og Íslands í handbolta og  mæ ó mæ ..það var ekkert smá spennandi og ótrúlega gaman að Ísland skyldi ná einu stigi með heim !!! Þeir hefðu reyndar getað unnið með góðum mun ef þeir hefðu náð að nýta eitthvað af þeim færum sem fóru forgörðum. En jafntefli var glæsilegt. Við smöluðum nettu liði af Íslendingum og létum ekki okkar eftir liggja í að hvetja strákana...enda heyrðist ekki mikið minna í okkur í höllinni en Norðmönnum, þó við værum ekki nema kannski 200 stykki á móti nokkur þúsund Norsurum :p

Það er nú svo ...um næstu helgi er svo "sveitaball" í Oslo ....með hljómsveit frá Íslandi sem samanstendur af eftirfarandi.
Valur ( Buttercup) söngur
Hanni ( Skítamórall, Írafár) trommur
Siggi ( Írafár) bassagítar
Birkir (Ber) gítar

það verður án efa mjög gaman......en þá læt ég staðar numið hér get nú ekki sagt frá öllu ...þá blogga ég kannski fljótlega aftur :lol:

Hafið það gott öll






» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 22:14:40 / sigrun66

Meðan danskurinn og tjallinn .....

...ganga af göflunum og óska íslendingum norður og niður hringir hann Jens okkar í Geir og býður fram hjálp, kemur svo í sjónvarpið og róar norðmenn sem eiga pening hjá íslensku bönkunum. Einhverjir hafa víst tapað slatta af pening vegna Kaupþings hérna í Norge en ég hef samt ekki enn heyrt að norðmenn vilji slást í hópinn með nágrönnunum DK og UK og grilla okkur lifandi.

Det er deilig å være islending i Norge ....ennå!!



» 4 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 22:52:55 / sigrun66

Island að fara á hausinn??

Í fréttatíma NRK (Norska ríkissjónvarpið) í kvöld var fjármálakrísunni á Íslandi gerð góð skil. Fréttamaðurinn byrjaði á að fjalla um hvað Íslendingar hefðu átt duglega fjármálamenn sem komu landinu á kortið í fjármálaheiminum og hvað íslendingar hefðu verið stoltir af þessum klóku mönnum, að þeir hefðu verið áberandi í fjölmiðlum meðan allt lék í lyndi en nú hlypu þeir sem fætur toguðu ef þeir sæju fjölmiðlafólk í nágrenninu.

Hann talaði við einn af stjórnendum Glitnis og spurði hann nokkuð beinskeittra spurninga og það endaði með að manngreyið stóð alveg á gati, vissi ekkert hverju hann átti að svara og endaði með að segja ...nei nú er komið nóg nú er ég hættur í viðtalinu.

Fréttamaður NRK talaði við geðlækni á Landspítalanum og spurði hvort það væri aukning í að fólk kæmi vegna fjármálakrísunnar. Læknirinn hvað svo vera....Hann talaði líka við einhvern fjármálagúrú...man ekki hvað hann heitir ...sem sagði að það væri á ábyrgð 20-30 manna hvernig komið væri. 

Her er klippan
En ég get alveg viðurkennt að ég er guðslifandi fegin að búa í Noregi.



» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 17:28:08 / sigrun66

Nú nú .......það nýjasta.

Þá er Oslo Maraþonið margumtalaða búið ...og það gekk nú bara bærilega. Ég setti mér það markmið að klára 21,1 km. Og það gerði ég á 2 tímum og 14 mínútum. Ágætt svona miðað við að ég byrjaði að hlaupa af einhverju viti í byrjun júni og að þetta var í fyrsta sinn sem ég hleyp í tímatöku. Svo næsta markmið er hálfmaraþon í Berlín í apríl 2009 og þá á betri tíma. Menn segja að Oslo maraþon sé erfitt hlaup vegna þess að það séu svo miklar brekkur í því svo þá er bara að taka Berlín með trompi...þar er allt flatt!

Annars er lítið annað markvert sem gerist .....bara brjáluð vinna. Vanessa er flutt inn til bráðabirgða en við sjáumst nú lítið ...þar sem ég er ekki mikið heimavið hálfa vikuna amk út Október.

Vona bara að allir hafi það gott í kuldanum og snjónum á Íslandi ...hér rignir bara ...og er kalt og hráslagalegt...en það er víst að koma vetur eina ferðina enn.

Lifið heil



» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 15:08:25 / sigrun66

Styttist í hlaup

Jamm ...það styttist í Glitnis maraþonið ...bara 11 dagar og ég hef ekki getað æft eins mikið og ég hefði viljað vegna mikillar vinnu uppá síðkastið. En þetta gengur örugglega .....svo lengi sem ég kemst í mark og klára 21 km þá er ég ánægð. Tíminn skiptir mig litlu máli svona í fyrsta skipti.

Annars er lítið að frétta....bara vinna, vinna og aftur vinna. Ég fæ meðleigjanda eftir viku ...í smátíma. Vanessa vinkona mín sem býr núna í Elverum er að flytja til Oslo og fara að vinna á Rikshospitalet en er ekki búin að finna sér neitt húsnæði, svo ég ætla að skjóta yfir hana skjólshúsi til bráðabirgða. Ég er jú svo lítið heima ...hálfa vikuna er ég hjá henni gömlu minni á næturnar.

Annars er fátt annað nýtt......

Lifið heil og kveðjur til allra.



» 4 hafa sagt sína skoðun

07.09.2008 17:30:33 / sigrun66

Viðtalið

er hér

Tveir efstu linkarnir undir Nettradio....þar sem stendur Nitimen ...síðast í fyrri upptökunni og fyrst í seinni upptökunni.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2008 16:01:20 / sigrun66

September byrjar með pang-start.

Jæja ...þá er ég nú byrjuð í nýju vinnunni  og  verð að segja að þetta lítur nú bara ágætlega út. Svona til að svara spurningunni hennar Mæju hér í kommentum í færslunni á undan, þá er Telenor síma-selskap ...það stræsta í Norge og það teygir anga sína vítt og breytt um heiminn. Í gær settumst við sem vorum að byrja í fyrsta skipti við símann og hringdum út. Drullu-nervös yfir því að vera ekki búin að læra á systemið og ekki vera búin að læra öll verð og hraða (er að selja ADSL internet) á vörunum, tókst mér að selja eina áskrift í mínu öðru eða þriðja símtali ...og það er bara ansi gott!!! Fékk tvær sölur í gær, þar af eina til til mín sjálfrar, en ég þéna pening á því líka ;)

Í dag ...ekkert búin að læra mikið meira en viti menn!! Í dag seldi ég held ég 5 farsímaáskriftir og 2-3 ADSL ...svo í dag var góður dagur!! Tímalaun á milli 450-500 kr norskar, ekki slæmt það! Svo er bara að vona að þetta gangi vel áfram og ég verði þrususölumaður þegar ég er komin með allt á hreint! :d Sjefinn minn var amk ekki óánægður í dag!

Á morgun! Island - Norge í fótbolta. Ég get nú ekki sagt að ég sé stærsti fótboltaaðdáandi sem um getur en Áfram Ísland klúbburinn er að koma með einhvern hóp á morgun til að fara á leikinn og vildu vera í samstarfi við Íslendingafélagið með upphitun og að safna saman stuðningsfólki fyrir fótboltastrákana okkar... svo að þeir vinni nú Norsarana... sem eru btw sigurvissir en pínu hræddir við Eið Smára.... (já ég veit, var búin að segjast ætla að hætta í stjórn en ég er bara heimasíðu-epost-og reddingagúrú núna...ekkert peningavesen, svo það er mikill léttir)

En semsagt þá á að safnast saman eftir hádegið á morgun niður í bæ, æfa stuðningslögin og hita upp mannskapinn. Í dag hringdi svo NRK, norska ríkisútvarpið í mig, hafði fengið nafnið mitt og símanr uppgefið hjá Íslenska sendiráðinu og vill fá mig og einn annan í viðtal í fyrramálið ...um fótboltann, fótboltaáhuga íslendinga, matarvenjur, muninn á tungumálunum o.s.frv. og ég sem veit ekkert um fótbolta :lol:!!!! Ég fékk sem betur fer einn góðan kunningja minn til að koma með svo hann getur svarað fyrir fótboltann ;)

Jæja ...þetta er nú að verða ansi langt ...veit ekki hvar á NRK þetta viðtal kemur en kannski maður linki það inn hérna til gamans ef það verður birt á netinu ........:) heyrumst og hafið það gott


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 16:11:26 / sigrun66

Breytingar.

Jæja ...þá er nú ýmislegt að ske hjá manni. Ég vann mína síðustu "official" vakt á Ullevål sykehus í nótt. Tek kannski eina og eina extra vakt svona þegar fram líða stundir og ef ég fæ fráhvarfseinkenni frá þeim. Hilde bauð mér reyndar samning uppá fastar extravaktir :lol:...en ég þakkaði nú nei fyrir það.

Á morgun byrja ég svo sem sölumaður í Telenor ....það verður fróðlegt að sjá hvernig það verður. 3 nætur í viku gisti ég svo hjá Marit gömlu .....og það er svosem ágætt...hún býr stutt frá mér og það er ekkert slæmt að sofa á fullum launum. Ekki fæ ég amk borgað fyrir að sofa heima hjá mér.

Í vor skráði ég mig í hjálparsveit Rauða Krossins í Oslo. Ég er enn að bíða eftir að fá innkall frá þeim til að fara á námskeið til að geta byrjað að starfa með þeim. Þessi hjálparsveit virkar svona svipað og björgunarsveitirnar eru að gera á Íslandi ...semsagt leit og björgun að týndu fólki....aðstöð við stórslys og aðrar krísur...eins og t.d. skógarelda sem nóg er af á heitum sumrum. Gæsla á íþróttaviðburðum og tónleikum ofl ofl .....svo getur maður tekið fullt af námskeiðum sem öll eru án endurgjalds...en að sjálfsögðu gefur maður vinnu sína í sveitinni.

 Mig langar t.d. að taka sjúkrabílanámskeið ...þar lærir maður fullt spennandi eða að verða skyndihjálparleiðbeinandi. En þetta kemur allt í ljós þegar fram líða stundir..... en þetta var nú bara smá viðleitni í að halda úti þessu bloggi.....verð aktívari við þetta þegar það fer að vera meira um að vera ...og þegar ég er að sjá hvernig ég er að fíla mig sem sölumaður Telenor ;)

Góðar stundir



» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 91053
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 1 mars
Myndir/Bilder/photos
Myndasiða Ingunnar